Þú ert það sem þú hugsar


d Forsíða
x Um námskeiðin
x Umsagnir
x Fyrirlestrar
x Dagskrá
x Fyrirtæki / hópar
x Skráning
x Tenglar
x Bókalisti
x Um Guðjón
x Hafðu samband
   
Bloggsíða Guðjóns

Skráðu þig á
póstlistann !
Nafn:
Netfang:




Þú getur staðið upp og talað- fagmannleg og frjálsleg framkoma

Viltu læra að byggja upp sjálfstraust og góðan tæknilegan grunn til að geta staðið upp og talað við nánast hvaða tilefni sem er?

Á þessu þriggja skipta námskeiði kennir Guðjón grunninn að öllu því sem snýr að raddbeitingu, líkamsstöðu, efnistökum, uppbyggingu, markmiðum og sjálfstrausti.

Markmið námskeiðisins er að kenna þátttakendum einfaldar en áhrifaríkar aðferðir til að undirbúa hugann, yfirstíga ótta og standa upp og tala við hvaða tækifæri sem er. Allir fá að tjá sig á námskeðinu og þess vegna er takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Námskeiðið byggir á áralangri reynslu Guðjóns, en hann hefur unnið haldið fyrirlestra fyrir þúsundir Íslendinga, unnið í útvarpi og sjónvarpi og kennt rúmlega fimmþúsund jógatíma.

Lögð er mikil áhersla á eftirfarandi fimm grunnþætti:
- Raddbeitingu.
- Líkamsbeitingu.
- Efnistök og uppbyggingu.
- Markmið og tilgang.
- Sjálfstraust.

Kennt er þriðjudag og fimmtudag frá 19:30 til 22:30 . Laugardag frá 13:00 til 17:00.

Verð: 27.900 kr. eða 6.975 kr. á mánuði vaxtalaust í fjóra mánuði (VISA / Mastercard)

Aðeins eitt námskeið eftir:
- Reykjavík 20., 22. og 24.maí 2008

Skráðu þig núna með því að smella hér!

 

Guðjón Bergmann - gudjon@gbergmann.is